Umsögn kennara

Elísa Eir þú ert dugleg og metnaðarfull og góðmennska þín ber af öðrum, gangi þér allt í haginn

Helga


Skólaárið 2009-2010

Í 7. bekk er búið að vera mjög gaman. Það sem ég er búin að læra er mjög margt t.d. meira í stærðfræði og íslensku, nýtt tungumál (dönsku), meira í ensku og fleira.

Stærðfræði: Í stærðfræði lærðum við prósentur,algebra,brot, og fleira.

Íslenska: Í íslensku lærðum við um Hallgrím Pétursson, við unnum líka í íslensku bókum eins og mál er miðill og mál til komið, galdrastafir og græn augu.

Enska: Í ensku vorum við að læra um Önnu Frank, lýsingarorð, hefti sem heitir my projects og fleira.

Danska: Í dönsku vorum við að læra fullt af grunnreglum, gera allskonar verkefni og fleira.

Samfélagsfræði: Tyrkjaránið og fleira.

Landafræði: Evrópa.

Náttúrufræði: Líkami mannsinns, fuglar.

Verk og list: Hreyfimyndagerð, smíði, heimilisfræði, saumar, tónmennt.

Annað: Íþróttir, dans og sund.


Tyrkjaránið leikrit

Við gerðu leikrit um Tyrkjaránið og sýndum það fyrir foreldra og 5 og 6 bekk. Mér fannst mjög gaman að setja upp leikrit sérstaklega af því að þá sleppur maður við öðruvísi námsefni. Mér finnst stundum betra að læra svona en það fer svolítið eftir því hvernig leikrit það er. Mér fannst engir gallar við að setja upp þetta leikrit það var bara mjög gaman og mjög lærdómsríkt.

       tyrkjaránið_elisa


Enska-Anne Frank

annefrank_elisa

Í ensku vorum við að læra um ævi Önnu Frank. Í fyrstu tímunum vorum við með hefti með texta sem var lesinn upp af spólu í útvarpatækinu og svo áttum við að gera photostory myndband um hana. Við áttum að búa til texta í vinnubókina okkar sem við lásum svo inná myndir sem við fundum, svo áttum við að laga til og klára. Ég gerði smá heima og kláraði svo að lesa inná eftir skóla. Mér fannst mjög gaman að læra um Önnu Frank og mjög lærdómsríkt.

Hér er myndbandið.


Holland

Þetta er photostory myndbandi sem tilheyrir landafræði ég var bara að læra að setja það inná núna.

Holland


Danska

Í vetur erum við búin að vera læra dönsku í fyrsta skiptið og mér er búið að ganga mjög vel. Við erum búin að gera mörg verkefni t.d. matseðil, spil, fjölskylduverkefni og margt fleira. Mér finnst mjög gaman að læra nýtt tungumál og mér gekk mjög vel að ná tökum á dönskunni af mínu mati.

denmark_elisa


Stærðfræði-hringekja

Á föstudögum í vetur höfum við verið í stærðfræði hringekju í fyrsta tíma. Við gerðum allskonar verkefni t.d. ljóð, þrautir og fleira. Það sem mér fannst jákvæðast var að þetta voru skemmtileg verkefni og flest lærdómsrík en það sem var neikvætt var að við bekkurinn þurftum alltaf að skipta um stofur og þá myndaðist svo mikill troðningur það væri miklu sniðugra ef kennararnir skiptu bara um stofu. En annars var þetta mjög skemmtilegt.

Landafræði

Í landafræði vorum við að læra um Evrópu. Við vorum að vinna með bók sem heitir Evrópa álfan okkar. Við vorum líka með hefti, í heftinu áttum við að svara spurningum. Okkur var líka skipt í hópa og hver hópur fékk 2-4 lönd sem þau áttu að teikna ég var með Helgu Sæunni og við fengum Tékkland, Serbíu og Bretland. Næsta verkefni var að velja tvö lönd til að gera Power Point og Photo Story. Eitt landið átti að vera í Power Point og hitt í Photo Story. Ég valdi Búlgaríu í Power Point og Holland í Photo Story.

Við vorum að gera heimaverkefni um Evrópu og það voru allskonar verkefni sem við áttum að gera td. að finna fréttir um Evrópu, skrifa um frægar persónur, gera einkenni fjögura landa o.fl. Ég fékk 10 fyrir öll verkefnin.

evropa_elisa


Landafræði

Þetta heitir reyndar Búlgaría Elísa en vistaðist óvart á Rússland Helga Jóna og það er ekki hægt að breyta því.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband